
Stapi lífeyrissjóður fékk okkur til að setja upp ársskýrslu sjóðsins fyrir árið 2012 og við áttum mjög gott samstarf. Ljósmyndirnar komu frá Gísla Dúa.

Stapi lífeyrissjóður fékk okkur til að setja upp ársskýrslu sjóðsins fyrir árið 2012 og við áttum mjög gott samstarf. Ljósmyndirnar komu frá Gísla Dúa.

Stórsýning Menntaskólans á Tröllaskaga, auglýsingar og veggspjöld fyrir opnun sýningar. Glöggir sjá að grafíkin er unnin beint úr merki skólans og lýsir þeirri miklu grósku sem er í starfinu.

Auglýsing fyrir Instagram leik Hlíðarfjalls, Vodafone og Flugfélags Íslands um páskana 2013. Veggspjöld á staðnum og keyrt á samfélagsmiðlum.
Auglýsingar í dagskrárbleðlum og flash vefbanner eftir keppnina.




Stór veggspjöld fyrir bás Akureyrarstofu á Vestnorden ráðstefnunni 2012, sýnir afþreyingarmöguleika á Akureyri allan sólarhringinn, allt árið um kring.




Auglýsing fyrir Primex, fyrirtæki í sjávarlíftækni

Útskýringarmynd unnin fyrir Primex sem sýnir fitubindingu í meltingu.






Blek hefur séð um kynningarefni Éljagangs frá því hátíðin byrjaði vorið 2011 og eiga fulltrúa í stjórn félagsins sem heldur utan um skipulagningu hátíðarinnar. Kynningarefnið hefur verið í sama stíl frá upphafi en á hverju ári notum við eina flotta þemamynd úr einu sporti sem er á hátíðinni. Í ár var Icecross í forgrunni enda óstjórnlega flott myndin sem Einar Guðmann tók á síðasta ári.
Það sem við gerðum í ár fyrir Éljagang var:
- Útbúum birtingaáætlun þar sem markmiðið var að ná til útivistaráhugafólks með sem minnstum tilkostnaði.
- Sóttum um styrki fyrir hátíðina til fyrirtækja, leituðum tilboða í birtingar og prentun
- Settum upp vef á íslensku og ensku með vefborðakerfi og uppfærðum hluta hans sjálfar og aðstoðuðum aðra við uppfærslur
- Settum um facebook síðu og uppfærðum hana reglulega með efni
- Bjuggum til leik á facebook með því að setja upp leikjaforrit og tengja það við facebook app á facebooksíðu Éljagangs
- Hönnuðum auglýsingar fyrir prentmiðla í þeim stærðum sem þurfti skv. birtingaáætlun
- Hönnuðum vefborða í þeim stærðum sem þurfti skv. birtingaáætlun
- Skrifuðum PR texta og sendum til fjölmiðla ásamt ljósmyndum
- Bjuggum til flyer, A6 stærð, og tókum þátt í dreifingu á honum
- Settum upp viðburðabækling þar sem hvert auglýsingapláss var vel nýtt, teiknuðum kort sem var aðal innihald bæklingsins, tókum þátt í dreifingu á bæklingnum.
- Vöktuðum viðburði yfir sjálfa hátíðina og settum inn ljósmyndir á instagram og facebook
Vetrar- og útivistarhátíðin Éljagangur var vel sótt, fékk góða umfjöllun og var þessi helgi fjölmennasta helgin í Hlíðarfjalli það sem af er vetri.

Vefútlit og uppsetning fyrir Gildi lífeyrissjóð


Auglýsingar fyrir Íslensku Alpana á Akureyri


Auglýsingar fyrir Dekkjahöllina

Auglýsingar fyrir Hlíðarfjall í tímaritið Ský.

Ímyndarauglýsingar fyrir Grýtubakkahrepp.

Merki og teikningar fyrir fjölþrautafélagið Landvættir. Markmið þess er að heiðra þá sem ljúka fjórum ákveðnum þrautum á einu ári.

Útlitshönnun og uppsetning á vef fyrir Almennu lögþjónustuna.
Skoðaðu vefinn á www.alhf.is



Átt þú rétt á skaðabótum?
Nýtt útlit á auglýsingar fyrir Almennu lögþjónustuna á Akureyri ásamt hönnun á heildarútliti lögstofunnar.

Auglýsingar fyrir fyrirlestraröð Landverndar og Norræna hússins um hugarfarsbreytingu í umhverfismálum. Auglýsingarnar eru ekki birtar í prentmiðlum heldur sendar á póstlistum og á félagsmiðlum.

Merki fyrir Nýsköpun í opinberri þjónustu. Unnið fyrir Stjórnsýslustofnun. Sjá nánar hér

Veggspjald í tilefni 150 ára afmælis Akureyrarbæjar


Sjá vefinn: http://stjornarskra.yrpri.org/



Akureyrarbær hélt upp á 150 ára afmælið með veglegri hátíð dagana 24. ágúst – 2. september. Við hjá Blek vorum fengin til að hanna útlit og markaðsefni hátíðarinnar, mjög skemmtilegt verkefni!


Merki fyrir bleiubúðina sem selur taubleiur og fylgihluti


Vefútlit og uppsetning í WordPress fyrir sænsku hestafréttasíðuna IsHestNews.se. Síðan er útbúin öflugu vefborðakerfi, er vel tengd við félagsmiðla og er á stöðugri uppleið frá því hún var opnuð í maí 2012.

Merki fyrir sænsku fréttasíðuna um íslenska hestinn – ishestnews.se

Merki fyrir Almennu lögþjónustuna á Akureyri